Miðvikudagur 30.04.2008 - 19:51 - Ummæli ()

Fimm unglingar játa að hafa valdið stórtjóni með sinubruna við Hvaleyrarvatn

sinubruni4.jpgFimm piltar á aldrinum 17-20 ára hafa játað þátttöku í að kveikja tvo sinuelda við  Hvaleyrarvatn, ofan Hafnarfjarðar, þar sem stórtjón hefur orðið á gróðurlendi í vikunni.

Aðfaranótt mánudags var kveikt í norðan við vatnið og rúmlega sólarhring síðar voru brennuvargir á ferð sunnan við Hvaleyrarvatn. Málin eru að mestu upplýst, segir lögreglan, en hún hefur yfirheyrt 10 pilta vegna málsins og handtekið sex en fimm hafa játað, eins og fyrr segir.

Tjónið við Hvaleyrarvatn er gríðarlegt en þar hefur verið unnið mikið sjálfboðaliðastarf við ræktun á undanförnum árum. Myndin hér til hliðar er tekin af lögreglumanni í Hafnarfirði frá brunasvæðinu og yfir vatnið. Neðri myndin er tekin af Landhelgisgæslunni.

sinubruni3.JPG„Svörtu flekkirnir sýna svæðin sem urðu eldi að bráð. Til hægri er svæðið sem brann aðfaranótt þriðjudags en vinstra megin má sjá hvar brennuvargar voru á ferð aðfaranótt mánudags,“ segir á vef lögreglunnar. Alls hefur lögreglan í Hafnarfirði farið í níu útköll vegna sinubruna í aprílmánuði. „Oft er um að kenna fikti barna með eldspýtur en í nýjustu sinubrununum við Hvaleyrarvatn var ekki slíku fyrir að fara. Þar áttu engir óvitar hlut að máli,“ segir lögreglan sem einnig vinnur að rannsóknum á tveimur íkveikjum sem framdar voru í mánuðinum á svæðinu við Hvaleyrarvatn. Annars vegar var kveikt í stolnum bíl og hins vegar í hesthúsi. Þau mál eru óupplýst.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is