Dóms- og heilbrigðisráðherrar taka höndum saman um meðferðargang á Litla-Hrauni
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í dag samning sem tryggir fé til að standa undir rekstri við sérstakan meðferðargang í fangelsinu á Litla-Hrauni þar sem fangar sem kjósa svo fá hjálp við að vinna sig út úr vítahring andfélagslegs hugarfars, afbrotahegðunar og vímuefnamisnotkunar.
Undanfarna mánuði hefur verið starfræktur sérstakur meðferðargangur á Litla-Hrauni þar sem fangar sem dvelja á ganginum fá víðtækan stuðning og einstaklingsmiðaða ráðgjöf. Fangarnir gangast undir ákveðnar reglur og skuldbinda sig m.a. til að neyta engra vímuefna meðan þeir dvelja á meðferðarganginum.
Um er að ræða tilraunaverkefni sem upphaflega var hugsað til sex mánaða og að þeim liðnum skyldi reynslan vera metin og tekin ákvörðun um framhaldið.
Það er skemmst frá því að segja að árangurinn er mjög góður og því hafa dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðisráðherra tekið höndum saman til að tryggja áframhaldandi starfsemi meðferðagangsins, að því er kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu í dag.
Hvort ráðuneytanna fyrir sig leggur fram 7,5 milljónir, alls 15 milljónir, sem dugir fyrir rekstrinum út þetta ár. Að auki verður sett á laggirnar samráðsnefnd ráðuneytanna sem mun vinna að heildarstefnumótun í þessum málum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is