Fimmtudagur 08.05.2008 - 11:26 - Ummæli ()

Búrma: Hjálparstofnanir í stappi við stjórnvöld um neyðaraðstoðina

burma2.jpgAnders Ladekarl, framkvæmdastjóri danska Rauða krossins, beið í morgun enn í Bangkok í Thailandi eftir að fá vegabréfsáritun til Búrma til aðfylgja eftir hjálparstarfi þar.

Hann segir í viðtali við Jyllands-Posten, að aðstæður til hjálparstarfs í Búrma séu fyrir neðan allar hellur og afstöðu stjórnvalda til hjálparstarfsins eftir fellibylinn Nargis  „sennilega það villimannslegasta sem við höfum upplifað.“

Herforingjastjórnin í Búrma sætir nú þungri gagnrýni Sameinuðu þjóðanna, Bandaríkjanna, nágrannaríkjanna í Asíu og fleiri ríkja fyrir að opna ekki landamærin strax til að hleypa aðstoðinni óheftri inn í landið. Sex sólarhringar eru nú liðnir frá því fellibylurinn gekk yfir landið.

Danski sendiherrann í Búrma,  Michael Sternberg sem kominn er kominn til höfuðborgarinnar Yangon, segir að eyðileggingin eftir fellibylinn sé gífurleg. Þúsundir líka og risastór tré sem hafi fallið séu út um allt og „fólk gangi í hringi og stari út í loftið.“ Hann segir varla eitt tré uppistandandi í höfuðborginni eftir hamfarirnar.

Hjálparstofnanir hafa lent í stappi við stjórnvöld með að fá að komast inn í landið með neyðaraðstoð. Til dæmis bíða þrjár flugvélar fullar af hjálpargögnum frá Sameinuðu þjóðunum enn eftir að fá lendingarleyfi í Yangon.

Sternberg hefur átt fund með breska sendiherranum til að samræma starfið, og segir að stjórnvöld verði að opna landið „annars förum við að sjá hrikalega afleiðingar næstu daga vegna sjúkdóma sem koma í kjölfarið.“

Fréttir eru af ógrynni af líkum sem fljóti um í óshólmum í suðurhluta landsins þar sem gríðarlegir vatnavextir urðu, eins og þessar gerfihnattarmyndir frá NASA sýna glögglega:

FYRIR:
burma-fyrir.jpg

EFTIR:
burma-eftir.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is