Sunnudagur 11.05.2008 - 20:24 - Ummæli ()

Náinn ráðgjafi John McCain á mála hjá herforingjastjórn Burma

John McCainFramkvæmdastjóri landsþingsnefndar John McCain, Doug Goodyear, hefur sagt af sér eftir að Newsweek greindi frá því að ráðgjafafyrirtæki hans, DCI Group, rak erindi herforingjastjórnar Burma í Washington. „Lobbýistafyrirtæki“ Goodyear hefur rekið mál stórfyrirtækja á borð við Exxon Mobil, General Motors og annarra stórfyrirtækja. Á árinu 2002 tók fyrirtækið einnig að sér að annast ýmis almannatengsl herforingjastjórnar Burma í Bandaríkjunum. Fyrirtækið reyndi meðal annars að kasta rýrð á ásakanir þess efnis að herforingjastjórnin misþyrmti og bryti kerfisbundið á mannréttindum íbúa Burma. DCI Group skipulagði áróðursherferð þar sem lögð var áhersla á baráttu herforingjastjórnarinnar við eiturlýfjasmygl og því haldið fram að gagnrýni á stjórnina byggðist mjög á lygum.

Frá þessu er greint í næsta tölublaði Newsweek sem kemur út 19 þessa mánaðar. Greinin birtist hins vegar á heimasíðu tímaritsins á laugardaginn. Fáeinum klukkutímum eftir að greinin birtist tilkynnti Goodyear að hann hefði sagt af sér sem framkvæmdastjóri landsþingsnefndar McCain.

Í frétt Newsweek var bent á að McCain hefði valið Goodyear eftir að hafa hafnað öðrum lobbýista, Paul Manfort. Manfort hafði rekið erindi Ferdinand Marcos og starfað sem pólítískur ráðgjafi fyrir Viktor Yanukovich fyrrverandi forsætisráðherra Ukraínu, en Yanukovich var sakaður um spillingu og einræðistilburði.

Politico greindi síðan frá því í morgun (sunnudag) að Doug Davenport, yfirmaður einnar af 11 svæðisbundum kosningaskrifstofum McCain, hafi sagt af sér eftir að í ljós kom að hann hafði verið tengiliður DCI Group við herforingjastjórn Burma.

Þessar fréttir hafa að nýju vakið alvarlegar spurningar um afstöðu McCain til svokallaðra “lobbýista”, en McCain hefur margsinnis lýst því yfir að hann sé andsnúinn áhrifum lobbýista í Washington. Frétaskýrendur og bloggarar hafa hins margsinnis vegar bent á að McCain sé umkringdur lobbýistum stórfyrirtækja. Úttekt Huffington Post á tengslum forsetaframbjóðendanna og lobbýista sýndi t.d. að tvöfalt fleiri lobbýistar störfuðu sem ráðgjafar McCain en störfuðu fyrir Hillary Clinton eða Barack Obama.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is