Fimmtudagur 15.05.2008 - 08:30 - Ummæli ()

Staðfest: tvíburar fyrir Angelinu og Brad

79957707.jpgAngelina Jolie hefur staðfest sögusagnir um að hún og Brad Pitt eigi von á tvíburum.

Það var reyndar hann Jack Black sem blaðraði fréttunum á opnunardegi Cannes-kvikmyndahátíðarinnar, en hann og Angelina voru saman í viðtali til þess að kynna kvikmyndina Kung Fu Panda.

„Þú verður komin með jafn mörg börn og The Brady Bunch þegar þú ert búin að eignast þessi,“ sagði hann.

Angelina var þá spurð hvort hún ætti von á tvíburum.

„Já, við erum búin að fá það staðfest,“ svaraði hún.

„Eða Jack var reyndar að staðfesta það rétt í þessu.“81080309.jpg

Angelina neitaði þó að láta í ljós kyn barnanna og sagði að hún og Brad vildu fá að halda því leyndu.

Þegar tvíburarnir fæðast verða Angelina og Brad komin með sex börn, en þau eiga fyrir börnin Maddox, sjö ára, Pax, fjögurra ára, Zahöru, þriggja ára og Shiloh sem er næstum tveggja ára.

Parið hefur flust til Frakklands þar sem þau búa sig undir fæðingu tvíburanna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is