Sunnudagur 18.05.2008 - 21:44 - Ummæli ()

Amy, Pete, músarungar og YouTube

79697034.jpgPete Doherty og Amy Winehouse hafa verið næstum óaðskiljanleg frá því að Pete var hleypt út úr fangelsi í síðustu viku.

Fjölmiðlar í Bretlandi eru farnir að kalla þau ógeðslegasta parið í tónlistarbransanum vegna eiturlyfjanotkunar og subbulegs útlits þeirra beggja.

Nýjasta uppátæki þeirra var að birta undarlegt myndband af sjálfum sér á YouTube þar sem þau eru að leika sér með nýfædda músarunga.

The Sun birti af því frétt á dögunum að Pete hefði keypt sér þrjá ketti í viðbót, en hann átti sjö fyrir, og einnig ungafullar mýs til að hafa ofan af fyrir þeim.

Nú eru ungarnir komnir í heiminn og í kjölfarið birtist myndbandið Winemouse á YouTube.

Myndbandið er meira en tveggja mínútna langt og sýnir Amy ásamt Pete handleika ungana og láta eins og þeir séu að tala.

„Blake, gerðu það ekki skilja við Amy, hún elskar þig,“ segir Amy fyrir hönd eins ungans og á þar við eiginmann sinn Blake Fielder-Civil sem er í fangelsi.

Doherty heldur svo upp öðrum unga og Amy heldur áfram:

„Ef þú skilur við hana þá er mér að mæta.“

„Ég er bara eins dags gamall, en ég veit hvað ást er.“

Myndbandið hefur þó skapað mikla reiði á meðal dýravina og dýraverndarsinna sem segja að það að handleika svona litla unga geti orðið til þess að móðir þeirra drepi þá.809993171.jpg

Fjölmargir kommentuðu við myndbandið og fordæmdu Amy og Pete fyrir að snerta ungana með grútskítugum fingrum.

Talsfólk fyrir dýraverndarsamtökin PETA og RSPCA hefur sagt að þó að Amy sé nærgætin í meðhöndlun sinni á ungunum þá séu þeir alltof ungir til þess að vera teknir frá móður sinni og handleiknir af fólki.

Mýs reiða sig mikið á lyktarskynið og hætta er á að móðir unganna éti þá ef hún finni af þeim ókunna lykt.

Talsmaður fyrir Amy hefur sagt að myndbandið sé aðeins saklaus skemmtun.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is