Mánudagur 19.05.2008 - 17:46 - Ummæli ()

Bréf Einsteins um trúmál seldist á 30 milljónir

einstein-bref-um-gud.jpgBréf sem Albert Einstein skrifaði heimspekingnum Eric Gutkind árið 1954 þar sem hann kallar Biblíuna „heldur barnalega“ seldist fyrir 404 þúsund dali, eða tæpar 30 milljónir króna á uppboði í London um helgina. Það var 25-falt áætlað verð.

Haft er eftir Rupert Powell uppboðshaldara hjá Bloomsbury Auctions í New York Times að kaupandinn, sem ekki er nafngreindur, hafi brennandi áhuga á fræðilegri eðlisfræði og öllu sem henni viðkemur. Meðal þeirra sem buðu í bréfið var Richard Dawkins, þróunarlíffræðingur og þekktur boðberi trúleysis.

Aðeins einu sinni hefur fengist hærra verð á uppboði fyrir bréf Einsteins. Ástarbréf hans til fyrstu eiginkonu sinnar, Mileva Maric, seldust fyrir 442.500 dali árið 1996.

Einstein, sem tímaritið Time útnefndi m.a. mann 20 aldarinnar, fer líka háðulegum orðum í bréfinu um þá hugmynd að gyðingar séu guðs útvalda þjóð.

Einstein segir í æviminningum sínum að hann hafi komist að þeirri niðurstöðu 12 ára gamall að trúarbrögðin væru haugalygi og aldrei litið til baka. Hann hafi hins vegar aldrei misst trúarlega upplifun sína á því sem virðist lögmálsbundin uppbygging alheimsins. Hann geymdi alla tíð með sér náttúrulegt samband og tilfinningu fyrir óræðni tilverunnar, en afkrifaði allar hugmyndir um persónulegan guð sem svaraði bænum og sömuleiðis líf eftir dauðann.

Fleyg ummæli Einsteins eins og afneitun hans á skammtafræðunum: „Guð er ekki í teningaspili“ og „Vísindin eru lömuð án trúar en án vísinda er trúin blind“ hafa hin síðari ár verið hent á lofti til stuðnings kenningum um vitræna hönnun alheimsins og margir hafa viljað skipa honum í flokk trúmanna.

Sjálfur sagðist hann þó frekar vera efahyggjumaður (agnostic) frekar en guðleysingi eða trúleysingi (atheist). Þá sem tilheyrðu síðarnefnda hópnum sagði hann gjarnan vera jafn óumburðarlynda og ofsatrúarmennina.

Niðurstaða Einsteins var að spurningin um guð væri „of stór fyrir takmarkaða vitund okkar.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is