Danskir foreldrar afbrotaunglinga dæmdir á námskeið í barnauppeldi?
Danski velferðarráðherrann Karen Jespersen vill láta dæma foreldra síbrotaunglinga til að sækja kennslu um barnauppeldi. „Það er leiðinlegt að þurfa að grípa til svo róttækra aðgerða, en ef fjölskylda tekur engum framförum getum við verið nauðbeygð til að grípa inní. Það er ekki nóg að loka ungan síbrotamann inni, það þarf að vinna með fjölskylduna líka.“
Foreldrarnir eiga að fá kennslu samkvæmt amerískri aðferð sem nefnist MST sem byggir meðal annars á að veita umbun og refsingu, allt eftir því hvernig unglingarnir standa sig. Það á við um útivistartíma, mætingar í skóla og heimalærdóm svo eitthvað sé nefnt.. Um 350 danskar fjölskyldur hafa af frjálsum vilja tekið þátt í námskeiðinu.
Tine Egelund, vísindamaður við Velferðarrannsóknarsetur, telur ekki þessa amerísku fjölskylduþerapíu gera kraftaverk og segir í samtali við Berlingske Tidende að aðferðin hafi lítið verið rannsökuð.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is