Mánudagur 19.05.2008 - 14:20 - Ummæli ()

Facebook undirbýr andlistslyftingu

Facebook, félagsvefurinn vinæli, undirbýr umtalsverðar breytingar á efnisskipulagi og útliti sínu.

Breytingar verða gerðar á framsetningu mismunandi efnis á heimasíðu netenda með það að markmiði að gera þær „einfaldari, hreinlegri og markvissari.“

Heimasvæði notenda á Facebook byggist á aðalsíðu sem sýnir vinalista,  fréttastraum um það sem vinirnir eru að fást við, og svo ýmsar viðbætur, örforrit, eða græjur, sem notendur geta valið inná síðurnar, og snúast um allt frá saklausum vinsældakosningum innan vinahópsins upp í vampýruleiki og verslun með vini.

Með breytingunum er ætlunin að taka á einu helsta umkvörtunarefni margra notenda, sem er að margir þessara leikja og örforrita þvælist bara fyrir og dreifi  sér nánast sjálfkrafa til margra í vinahópi notendanna sem kæri sig oft ekki um þá truflun sem það veldur á síðunum. Nú eru til eru um 25.000 mismunandi viðbætur fyrir Facebook.

Meðal þeirra breytinga sem forráðamenn Facebook leita nú samráðs notenda um er m.a. að aðskilja efnisflokka siðunnar með flipum þannig að leikirnir færu til dæmis af aðalsíðunni (profile) yfir í sér síðu.

Margir lýsa ánægju sinni með fyrirhugaðar breytingar á sérstakri spjallsíðu Facebook en öðrum finnst að þær taki í burtu það sem gert hefur Facebook að skemmtilegum vef.

Í frétt BBC af breytingunum kemur fram að Facebook er vinsælasti félagsvefurinn í Bretlandi með næstum níu milljónir notenda.

Dæmi um fyirhugaðar breytingar er hér að neðan.

facebook2.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is