Mánudagur 19.05.2008 - 11:07 - Ummæli ()

Glitnir spáir stýrivaxtahækkun á fimmtudag

img_5895.jpgGreiningardeild Glitnis spáir því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína um 0,25% upp í 15,75% á vaxtaákvörðunardegi næsta fimmtudag og ljúki þá vaxtahækkunarferlinu sem staðið hefur yfir í fjögur ár.

„Þrátt fyrir að þróun íbúðaverðs, einkaneyslu og nýskráningar bifreiða bendi nú til þess að hagkerfið kólni hröðum skrefum teljum við að verðbólguþrýstingur í hagkerfinu sé viðvarandi, ekki síst vegna gengislækkunar krónunnar,“ segir í Morgunkorni greiningardeildarinnar. „Við teljum því að Seðlabankinn muni hækka vexti um 0,25 prósentustig á fimmtudaginn og að stýrivextir verði í kjölfarið 15,75%.“

„Eins og kunnugt er mældist verðbólga 11,8% á ársgrundvelli í apríl og hefur ekki verið meiri í tvo áratugi. Þá er útlit fyrir að Seðlabankinn hafi vanmetið verðbólgu á öðrum ársfjórðungi um 1,5 til 2 prósentustig í þjóðhagsspá bankans sem birt var samhliða síðustu vaxtatilkynningu 10. apríl. Við teljum því að Seðlabankinn muni hækka vexti til að draga úr verðbólguvæntingum og varna enn frekari hækkun verðlags. Við teljum að hækkunin muni marka endalok vaxtahækkunarferils Seðlabankans sem staðið hefur yfir í fjögur ár. Jafnframt reiknum við með að bankinn muni hefja vaxtalækkunarferli í september og að vextir muni standa í 14,75% í lok þessa árs.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is