Íbúar Napólí hafa fengið nóg af rotnandi sorpi
Íbúar Napólí á Ítalíu hafa fengið nóg af óþefnum af sorpi sem legið hefur rotnandi mánuðum saman á götum borgarinnar og hafa gert uppreisn.
Undanfarna daga hafa íbúarnir hvað eftir annað kveikt í ruslinu og jafnvel lokað götum með því að búa til götuvígi úr því. Slökkvilið hefur átt fullt í fangi við slökkvistarf og jafnvel þurft lögreglufylgd því slökkviliðsmenn hafa lent í grjótkasti.
Silvio Berlusconi, nýkjörinn forsætisráðherra Ítalíu, er væntanlegur með ríkisstjórnina til Napólí á morgun. Hann segir að hreinsun Napólí sé forgangsmál hjá honum og lofaði í kosningabaráttunni að hann myndi færa ríkisstjórnina til Napólí þar til búið yrði að leysa ruslvandann í borginni.
Borgaryfirvöld hættu að sækja rusl í desember, m.a. vegna fjárhagsvandræða og mjög illa hefur gengið að starfrækja sorphirðu í borginni.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is