Íran: Bahá’íar handteknir „af þjóðaröryggisástæðum“
Talsmaður írönsku stjórnarinnar, Gholam-Hossein Elham, sagði í gær að ástæðan fyrir handtökum sex leiðtoga bahá’í samfélagsins í Íran fyrr í vikunni tengdist þjóðaröryggismálum en ekki trúarskoðunum hinna handteknu. Bahá’íarnir væru meðlimir trúfélags sem ynni gegn írönskum hagsmunum og ætti í samskiptum við síonista og aðila óvinveittum Íran, þar á meðal Bretum og Bandaríkjamönnum, að því er segir í frétt frá Bahá’ía-samfélaginu á Íslandi.
Ennfremur segir Eðvarð T. Jónsson, talsmaður Baháía á Íslandi: „Sendifulltrúi bahá’í hjá SÞ, Bani Dugal, segir fullyrðingar írönsku stjórnarinnar fráleitar. Írönsk stjórnvöld bjóði fangelsuðum bahá’íum yfirleitt frelsi ef þeir samþykki að ganga af trúnni og játast islam. Yfirlýst stefna stjórnarinnar sé að útrýma bahá’í trúnni í Íran og vekja tortryggni og fjandskap almennings í garð bahá’ía. Handtökurnar séu liður í þessu áformi.
Stjórn Ahmadinejad’s forseta hefur verið sökuð um að reyna að uppræta bahá’í samfélagið, stærsta trúarminnihluta í Íran. Evrópuþingið, stjórnir Bandaríkjanna og Kanada og ýmis alþjóðleg mannréttindasamtök hafa mótmælt handtökunum undanfarna daga.
Á þriðja hundrað bahá’íar hafa verið líflátnir og þúsundir fangelsaðir eftir islömsku byltinguna í Íran 1979. Mannréttindanefnd SÞ birti fyrir nokkrum árum áætlun Íransstjórnar um trúarhreinsanir sem beinast einkum að bahá’ium. Fram kemur m.a. að meina eigi bahá´íum aðgang að æðri menntastofnunum og svifta þá öðrum borgararéttindum.
Bani Dugal segir að ásakanir klerkastjórnarinnar um tengsl bahá’ía við Ísrael byggist á því að höfuðstöðvar bahá’íar trúarinnar séu í Haifa. Ástæðan er sú að írönsku stjórnvöld sendu Bahá’u'lláh, fjölskyldu hans og fylgismenn, til tyrknesku fanganýlendunnar Akka árið 1868, löngu fyrir stofnun Ísraelsríkis. Akka er gömul fangelsisborg skammt norður af Haifa.
Klerkstjórnin hefur einnig sakað bahá’ía um að vera handbendi Rússa, Breta og Bandaríkjamanna. Dugal segir að ofsóknir á hendur bahá’íum stjórnin líti á bahá’í trúna sem helstu ögrun við viðteknar trúarskoðanir múslima. Bahá’íar líta á Bahá’u'lláh sem nýjan sendiboða Guðs og viðurkenna öll önnur trúarbrögð mannkyns.
Bahá’í samfélagið í Íran er langstærsti minnihlutahópur í landinu og telur um 300.000 meðlimi.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is