Rifrildið á milli Charlie Sheen og Denise Richards magnast enn
Charlie Sheen og Denise Richards eru skólabókardæmi um það hvernig á ekki að skilja.
Þau skildu árið 2006, en hafa háð stríð í fjölmiðlum upp á síðkastið sem snýst einna helst um nýjan umdeildan raunveruleikaþátt þar sem fylgst er með lífi Denise, en hún vann réttinn til þess að láta börn þeirra, Sam ,3 ára og Lolu, 2 ára, koma fram í þættinum.
Charlie reyndi að fá dómsúrskurð gegn því en tapaði.
Einnig snýst það um ásakanir Charlies um að Denise hafi beðið hann um sæði til þess að eignast annað barn eftir að þau skildu.
Denise var nýlega gestur í spjallþættinum Today með Matt Lauer, sem spurði hana út í meint e-mail sem hún sendi Brooke Mueller, núverandi unnustu Charlies.
„Við Charlie eigum mjög falleg börn saman,“ á að hafa staðið þar.
„Ég var einungis að leita að sæðisgjafa ef það kemur þér eitthvað við.“
Denise segir að þetta sé ekki rétt, og að upprunalega e-mailinu hafi verið breytt.
„Ég myndi aldrei senda e-mail til kærustunnar hans, og þegar það var sent var ég með Richie (Sambora),“ sagði hún.
„Ef ég hefði viljað sæði úr einhverjum hefði ég beðið Richie.“
Í kjölfarið gaf Charlie út yfirlýsingu þar sem hann segir að það sé ekki rétt að Denise hafi verið með Richie þegar hún sendi e-mailið.
„Ásakanir hennar um að e-mailinu hafi verið breytt á einhvern hátt til þess að búa til þessa sögu eru hreint út sagt fáránlegar,“ sagði hann enn fremur.
„Það að hún skuli halda áfram að ofsækja bæði mig og Brooke þremur árum eftir að sambandi okkar lauk, sem ég vil benda á að er lengri tími en hjónabandið sjálft varði í, segir allt sem segja þarf, og sýnir hvað hún er örvæntingarfull.“
En það er ekki allt gamanið búið enn, því að Denise hafði samband við The New York Post í gær til þess að svara ásökunum Charlies.
„Hann ræðst á mig og segir að ég sé að notfæra mér börnin okkar í gróðaskyni, en hann er sjálfur að reyna að hagnast á þessu öllu saman.“
„Hann sendi mér sms þar sem stóð: Ég vona að þú og einskis nýti, þroskahefti pabbi þinn fáið krabbamein og endið á sama stað og hún heimska mamma þín. Farðu til helvítis, hóran þín.“
„Mamma mín dó úr krabbameini og þetta er það sem ég þarf að eiga við í hverri einustu viku,“ sagði Denise.
„Ég vil ekki sæðið hans sem er smitað af skítugum vændiskonum og klæðskiptingum.“
„Það er hann sem getur ekki sleppt. Hann er ógeðslegur.“
Talsmenn Charlies hafa svarað þessu með því að segja að e-mailið verði rannsakað af tölvu DNA-sérfræðingum sem muni leiða sannleikann í ljós.
Þeir segja einnig að Charlie forðist það að ræða samskipti þeirra, en að Denise sé sú sem opinberlega geri mál úr öllu.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is