Laugardagur 24.05.2008 - 11:11 - Ummæli ()

Joachim og Marie gifta sig í dag – Danir í sannkölluðu hátíðarskapi

danir.jpgDanir bíða nú spenntir eftir brúðkaupi Joachims prins sem í dag klukkan 18.00 gengur að eiga Marie Cavallier í Møgeltønder Kirke.

Hin franska Marie Cavallier, sem er 32 ára gömul, var ekki týpan sem dreymdi prinsessudrauma þegar hún var barn. Henni þótti skemmtilegast að atast í hasarleikjum með eldri bræðrum sínum.

Hún hefur nú aðlagst nýja hlutverkinu sem prinsessa og fyrir löngu unnið hug og hjörtu Dana. Hún þykir einnig hafa tekist á við hið erfiða stjúpmóðurhlutverk drengja Jóakims með miklum glæsibrag og drengjunum þykir afar vænt um hana.

Það er biskupinn í Kaupmannahöfn, Erik Norman Svendsen, sem gefur brúðhjónin samaní kirkjunni í Møgeltønder, sem tekur 300 manns í sæti.

Veðurspáin er brúðhjónunum í hag, 20 stiga hiti og heiðskírt, og Danir eru þegar komnir í hátíðarskap, flagga á götum úti, skála í bjór og eru hinir glöðustu.

Rúv mun sýna beint frá brúðkaupinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is