Myndband af handtöku: Lögreglumaður leystur frá störfum og mál sent ríkissaksóknara
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu telur að framganga lögreglumanns sem sést ráðast að unglingi í verslun 10-11 á myndbandi sem sett hefur verið á YouTube sé þess eðlis að það kalli á rannsókn. Ríkissaksóknara hefur verið gert viðvart um málið og lögreglustjórinn hefur leyst lögreglumanninn, sem í hlut á, frá störfum.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér í dag vegna myndbandsins, sem sjá má hér en þar sést lögreglumaður ráðast gegn unglingi sem var grunaður um búðaþjófnað. Á Youtube er fullyrt að hann hafi verið saklaus og ekkert þýfi hafi fundist í fórum hans. Eftir einhver orðaskipti lögreglumannsins og piltsins, þar sem pilturinn hafi haldið fram sakleysi sínu og notað orðið “fucking” virðist lögreglumaðurinn ráðast með hálstaki að piltinum fyrir að vera með “kjaft.”
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=s94LWNcz2zc]
Yfirlýsing lögreglunnar fer hér á eftir:
„Á myndbandi sem sent hefur verið til birtingar á netinu má sjá lögreglumann hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu grípa um háls ungs pilts. Um leið og ábendingar bárust lögreglu um þetta myndband fór þegar í stað athugun á því hvenær þetta hafi gerst og hvaða lögreglumaður væri þarna á ferðinni, enda er framgangan með þeim hætti að það krefst að mati lögreglustjóra rannsóknar. Ríkissaksóknara var þegar gert viðvart um þetta atvik vegna alvarleika þess. Að lokinni gagnaöflun síðar í dag verður málið formlega sent ríkissaksóknara til rannsóknar, en hann fer samkvæmt lögreglulögum með rannsókn mála sem snerta meint brot lögreglumanna í starfi.
Ríkislögreglustjóra verður einnig gert viðvart um málið en hann fer með skipunarvald yfir lögreglumönnum og tekur því ákvörðun um hvort lögreglumanninum verður vikið frá störfum um stundarsakir meðan á rannsókn málsins stendur. Fram að því að ákvörðun um það liggur fyrir mun lögreglumaðurinn ekki sinna störfum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is