Ofbeldi lögreglumanns á myndbandi til rannsóknar
Myndband sem birtist á netinu og sýnir lögreglumann taka harkalega um háls á pilti í verslun 10-11 í Grímsbæ á Bústaðavegi hefur leitt til þess að viðkomandi lögreglumaður sinnir ekki störfum hjá lögreglunni meðan mál hans er í rannsókn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í tilkynningu í dag, að um leið og ábendingar bárust lögreglu um þetta myndband hafi strax hafist athugun á því hvenær þetta hafi gerst og hvaða lögreglumaður hafi verið þarna á ferðinni, „enda er framgangan með þeim hætti að það krefst að mati lögreglustjóra rannsóknar.“
„Ríkissaksóknara var þegar gert viðvart um þetta atvik vegna alvarleika þess. Að lokinni gagnaöflun síðar í dag verður málið formlega sent ríkissaksóknara til rannsóknar, en hann fer samkvæmt lögreglulögum með rannsókn mála sem snerta meint brot lögreglumanna í starfi. Ríkislögreglustjóra verður einnig gert viðvart um málið en hann fer með skipunarvald yfir lögreglumönnum og tekur því ákvörðun um hvort lögreglumanninum verður vikið frá störfum um stundarsakir meðan á rannsókn málsins stendur. Fram að því að ákvörðun um það liggur fyrir mun lögreglumaðurinn ekki sinna störfum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,“ segir í tilkynningunni.
Í umsögn um myndbandið frá þeim sem setti það á YouTube, segir að lögregla hafi grunað piltinn um þjófnað í versluninni en reynst saklaus og ekkert hafi fundist á honum. Eftir einhver orðaskipti lögreglumannsins og piltsins, þar sem pilturinn hafi haldið fram sakleysi sínu og notað orðið „fucking“ virðist lögreglumaðurinn ráðast með hálstaki að piltinum fyrir að vera með „kjaft.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is