Suðurlandsskjálfti 6,1 – 6,3 – Margir slasaðir – Hætta á sterkum eftirskjálfta – Hús rýmd á Selfossi og Hveragerði – Ölfusárbrú lokað
Suðurlandsskjálfti – jarðskjálfti að stærð 6,1 -6,3 varð kl. 15:46 í dag. Upptökin voru undir suðurenda Ingólfsfjalls.
Komið er í ljós að margir eru slasaðir, mest vegna glers sem brotnað hefur í húsum. Umtalsverðar skemmdir hafa orðið á húsum.
Fjöldahjálparstöð hefur verið opnuð í Sólvallaskóla á Selfossi og verið er að opna aðra hliðstæða í Hveragerði. Viðvörun Almannavarna um að fólk haldi sig utandyra er enn í gildi og verið er að leyta lausna í húsnæðismálum fyrir fólk fyrir nóttina, að sögnVíðis Reynissonar deildarstjóra hjá Almannavörnum. Almannavarnir biðja fólk að huga að nágrönnum sínum og styðja við þá sem eiga um sárt að binda.
Sjá upplýsingar hér um viðbrögð við jarðskjálftum á vefsíðu Almannavarna.
Skriður hrundu úr Ingólfsfjalli og fólk þusti skeflingu lostið út á götur á Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka og í Hveragerði þar sem allt lauslegt hrundi úr hillum og af borðum og rúður brotnuðu. Flest fólk hefur hafst við utandyra vegna hættu á eftirskjálftum, sem hafa verið nær stanslaust, þeir stærstu 4 til 4,5. Búist er við áframhaldandi eftirskjálftum, og ekki er hægt að útiloka annan skjálfta af sömu stærðargráðunni í kringum sex, að sögn Steinunnar Jakobsdóttur á jarðfræðideild Veðurstofu Íslands.
Ölfusárbrú og Óseyrarbrú hefur verið lokað svo og veginum undir Ingólfsfjalli, sem rofnaði á a.m.k. tveimur stöðum. Ljóst er að víða hafa orðið vegaskemmdir og fréttir eru teknar að berast af skemmdum á öðrum mannvirkjum, svo sem byggingum og íbúðarhúsum.
Almannavarnir biðja alla að halda sig utandyra á Selfossi og í Hveragerði, sérstaklega í þeim húsum þar sem vart hefur orðið við skemmdir. Allir viðbragðsaðilar hafa verið ræstir út á Suðurlandi og liðsauki á leiðinni frá Reykjavík. Verið er að rýma sjúkrahús Suðurlands á Selfossi vegna hættunnar af sterkum eftirskjálfta.
Einhver slys hafa orðið á fólki, allt að 20 manns, að sögn RÚV, en fréttir hafa ekki borist af alvarlegum meiðslum. Sjúkrabílar og slökkvibílar sáust á ferð um Suðurland eftir skjálftann. Samkvæmt fréttum RÚV leitaði nokkur fjöldi fólks til heilsugæslunnar í Hveragerði, sem var síðan rýmd vegna hættu á hruni eftir að skemmdir á byggingunni komu í ljós. Á heilsugæslunni á Selfossi var m.a. gert að sárum manns sem hafði tábrotnað í skjálftanum. Hann sagði að það hefði verið eins og jörðin kæmi á móti sér.
Tilkynningar hafa borist um skemmdir á veginum við Eyrarbakka. Í Hveragerði sagði fólk að vatn hefði horfið í einu vetfangi úr heitum pottum.
Páll Einarsson, jarðfræðingur, sagði í samtali við fréttastofu Útvarps klukkan 16 að fyrstu mælingar hefðu bent til að skjálftinn væri 6,1 að stærð en fyrstu mælingar frá Bandaríkjunum bentu hins vegar til að hann væri 6,7. Steinunn Jakobsdóttir, deildarstjóri hjá Veðurstofu Ísland, sagði í sjónvarpinu um kl. 18 að skjálftinn hefði verið af stærðinni 6,1-6,3.
Símasamband er í ólagi og er fólk beðið um að nota enga síma nema í ítrustu neyð.
Skjálftinn fannst vel í Reykjavík og allt vestur til Ísafjarðar og vestur á Strandir. Skjálftinn varð á vestasta sprungubelti Suðurlandsbrotanna. Að sögn sérfræðinga er ekki ólíklegt að með þessum skjálfta hafi losnað um afganginn af þeirri spennu sem einnig olli Suðurlandsskjálftanum árið 2000.
—
Ýtarlegar upplýsingar um skjálftann á vefsíðu bandarísku jarðfræðistofnunarinnar.
Ljósmyndina að ofan tók Sigurður Bogi á heimili á Selfossi í dag.
Hér að neðan eru kort veðurstofunnar og tímamynd frá því um kl 17:50. Einnig mynd af jarðskjálftamæli.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is

