Fimmtudagur 29.05.2008 - 18:46 - Ummæli ()

Allir stöplar Óseyrarbrúar skemmdir eftir skjálftann – þungatakmarkanir á Ölfusárbrú

thorlakshofn.jpgAllir brúarstöplar eru skemmdir á Óseyrarbrú eftir Suðurlandsskjálftann í dag sem átti upptök sín í sunnanverðu Ingólfsfjalli. Brúnni var lokað fyrir allri umferð um tíma en hefur verið opnuð á ný, að lokinni athugun.

Ölfusárbrúin við Selfoss er einnig skemmd og hafa verið settar á 40 tonna þungatakmarkanir, sem þó hafa ekki áhrif á umferð fólksbíla. Þetta kom fram í fréttum útvarpsins í kvöld.

Allar björgunarsveitir, frá Klaustri til höfuðborgarsvæðisins, hefur verið kallað út vegna Suðurlandsskjálftans. Þar á meðal eru sérþjálfaðir rústabjörgunarhópar. Einnig er verið að senda austur fyrir fjall tjöld og búnað.

Fjölmargir eftirskjálftar um og yfir 4 að stærð hafa orðið.

Við skjálftann sló út einni af þremur aflvélum Hellisheiðavirkjunar og vél í Ljósafossvirkjun. Báðar voru komnar í gang að ný um hálftíma eftir skjálftann. Öll kerfi Orkuveitunnar starfa eðlilega, samkvæmt yfirlýsingu frá fyrirtækinu, og varð ekki teljandi tjón.

Vitað er að heitavatnsæð í Hveragerði fór í sundur og var búist við að heitavatnslaust yrði í hluta bæjarins vegna þess.

Farsíma- og talsímasambandslaust varð um tíma á svæðinu í kringum Sólheima í Grímsnesi og í grennd við Þingvelli og á Úlfljótsvatni datt farsímasamband út. Samband komast á að nýju á sjötta tímanum, að sögn Símans.

Tryggingafélög hvetja fólk, sem orðið hefur fyrir tjóni til að taka ljósmyndir af skemmdunum og tilkynna tryggingafélagi sínu þær sem fyrst.
fjöldahjálpastöðvar selfoss hveragerði þorlákshöfn og þrátt fyrir linnulausan á erlendu máli og hvatt til að hugsa til þeirra sem ekki skilja íslensku að koma til sem að liði geta orðið. Eigendur brunatryggðra fasteigna eiga rétt á bótum frá Viðlagatryggingu.

Fólk á Suðurlandi er hvatt til að vitja nágranna sinna og kanna ástand mála hjá þeim, en hugsanlegt er talið að fólk sem var eitt heima hafi lent í vandræðum af völdum skjálftans.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is