Útrásin heldur áfram: Capacent kaupir enn eitt fyrirtækið í Danmörku
Útrás íslensks atvinnulífs til Danmerkur er enn í gangi. Síðasti áfangi hennar fólst í kaupum Capacent á DS Consulting í Kaupmannahöfn og er það sjötta félagið sem Capacent kaupir í Danmörku á undanförnum tveimur árum. Tólf manns starfa hjá DS Consulting en verða 14-18 í lok ársins.
Að sögn Capacent hefur DS Consulting náð að skapa sér traustan sess á undanfarin ár, einkum í opinbera geiranum, en það er sérhæft í ráðgjöf um útvistunar- og innkaupaferli. Undanfarin ár hefur félagið unnið fyrir 25 dönsk sveitarfélög, m.a. Kaupmannahöfn og Árósa. Forsvarsmenn félagsins segja algengt að hægt sé að ná fram 10-20% sparnaði með bættum ferlum.
Starfsmenn Capacent eru með þessum viðskiptum orðnir um 400, um 270 í Danmörku og um 130 á Íslandi. Höfuðstöðvarnar í Danmörku eru í Hellerup. Heildarvelta samstæðunnar árið 2008 er áætluð um rúmir sex milljarðar króna. Capacent veitir þjónustu á þremur sviðum; stjórnunar- og upplýsingatækniaráðgjöf, markaðsrannsóknum og ráðningum.
Kaupverðið er sagt trúnaðarmál en greitt er fyrir hlutabréf í DS Consulting með reiðufé og útgáfu nýrra hluta í Capacent í Danmörku. Glitnir veitti ráðgjöf vegna kaupanna. DS Consulting verður alfarið í eigu Capacent i Danmörku sem er í meirihlutaeigu IMG Holding sem er íslenskt félag og eignarhaldsfélag Capacent samstæðunnar.
Skúli Gunnsteinsson, forstjóri Capacent samstæðunnar, segir að félagið sé orðið mjög sterkt í Danmörku enda meðal hinna stærstu á sínu sviði þar í landi. Í fréttatilkynningu er haft eftir Skúla að aðstæður á fjármálamarkaði hafi ekki sett strik í reikninginn hvað varðar kaupin á DS Consulting þar sem þau voru ekki gerð fyrir lánsfé. Hann segir að Capacent hafi fullan hug á að stækka áfram erlendis og sé með nokkur verkefni í undirbúningi. Næsta skref verði trúlega stigið í Svíþjóð.
Myndin var tekin af Skúla Gunnsteinssyni, Ulrik Blinkenberg, framkvæmdastjóra Capacent í Danmörku, Jesper Drescher og Hrannari Hólm, framkvæmdastjóra Capacent, við undirskrift samninga.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is