Vill að borgarráð segi OR að hætta við að hætta við Bitruvirkjun
Óskar Bergsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, vill að borgarráð leggi fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að endurskoða þá ákvörðun að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar. Afgreiðslu á tillögu Óskars um málið var frestað á borgarráðsfundi í morgun.
Tillaga Óskars er eftirfarandi: „Ákvörðun stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur frá 20. maí s.l. þar sem ákveðið var að hætta undirbúningi Bitruvirkjunar og fresta öllum frekari framkvæmdum á svæðinu hefur sætt harðri gagnrýni. Margir hafa orðið til þess að velta fyrir sér réttmæti ákvörðunarinnar sem tekin var innan sólarhrings frá því að álit Skipulagsstofnunar var kynnt.
Í yfirlýsingu frá Samorku er því haldið fram að Skipulagsstofnun hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt, samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum Skipulagsstofnun hefur brugðist við þeirri yfirlýsingu með því að staðfesta að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að leggjast gegn eða hafna byggingu Bitruvirkjunar.
Í ljósi þess að álit Skipulagsstofnunar var ekki bindandi, harðra viðbragða hagsmunaaðila, mikils áfallins kostnaðar og nýrrar hagskýrslu ASÍ um verulegan samdrátt framundan í íslensku efnahags- og atvinnulífi, samþykkir borgarráð að beina því til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að endurskoða ákvörðun sína frá 20. maí. Það eru eindregin tilmæli borgarráðs Reykjavíkur að stjórn fyrirtækisins endurskoði fyrri afstöðu sína í ljósi þeirra upplýsinga sem fram hafa komið eftir að ákvörðun var tekin.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is