Föstudagur 30.05.2008 - 15:14 - Ummæli ()

Bretland: Orkufyrirtæki fái gögn um efnahag fátækra viðskiptavina

orka.jpgGögn um fólk með lágar tekjur verða trúlega afhent orkufyrirtækjum í Bretlandi, en breska ríkisstjórnin vill deila þessum upplýsingum með orkufyrirtækjum. Hugmyndin er að einfaldara verði að afgreiða niðurgreiðslur og halda áfram með þá styrki sem fyrir eru fyrir fólk sem þarf mest á því að halda.

Ríkisstjórnin telur að 2,5 milljónir heimila eigi í erfiðleikum með orkureikninga, en miðað er við fólk þurfi að nota hámark 10% af innkomu heimilanna í orkureikninga.

Neytendaeftirtlit segir illa stödd heimili mun fleiri, eða að minnsta kosti fjórar milljónir.

Áhyggjur vegna þeirra sem hafa lágar tekjur jukust mjög þegar orkufyrirtækin tilkynntu
tvöfalda hækkun á gasi og rafmagni á árinu 2008, og enn meiri hækkun í lok árs.

Flest fyrirtækin eru með svokallaða „félagslega gjaldskrá“ og þess vegna vilja yfirvöld að orkufyrirtækin búi yfir upplýsingum um efnahag fólks svo tryggt sé að efnaminni heimili borgi samkvæmt lægri taxta.

Formaður Félags aldraðra, Gordon Lishman, sagði að þessar aðgerðir væru umdeilanlegar en þó réttlætanlegar. Hann bætti við að hann fyndi fyrir átakanlegum áhyggjum félagsmanna sinna vegna ört hækkandi orkuverðs. Óháður þriðji aðili yrði þó að annast gögnin og fólk að fá mjög nákvæmar upplýsingar um hvað felist í aðgerðinni. Þeir sem ekki vilji vera með hafi þá val um að draga sig út úr.

Alistair Darling fjármálaráðherra, sagði í viðtali við BBC að hann væri ósammála þeim sem segðu að áætlunin væri eingöngu gömul lumma í nýjum umbúðum. „Við höfum gert samkomulag við orkufyrirtækin um að hækka upphæðina sem þeir nota til niðurgreiðslna hinna verst settu. Öllum orkufyrirtækjum ber skylda til að hjálpa þeim viðskiptavinum sínum sem eiga í erfiðleikum.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is