Condi Rice og Ingibjörg Sólrún hittust í Höfða
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hittust á fundi í Reykjavík á morgun þegar Rice staldraði við í nokkrar klukkustundir hér á landi eftir að hafa verið í Svíþjóð.
Að fundi ráðherranna loknum héldu þær sameiginlegan blaðamannafund þar sem Rice svaraði spurningum um fordæmingu Alþingis á starfrækslu fangabúða Bandaríkjamanna í Guantanamo í Kúbu með því að vísa því á bug að þar eigi nokkur mannréttindabrot sér stað.
Síðan hélt Rice til fundar við Geir H. Haarde, forsætisráðherra, en hann hélt henni hádegisverðarboð í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Þar beið fámennur hópur manna til þess að koma á framfæri mótmælum við Rice gagnvart mannréttindabrotum Bandaríkjamanna við meðferð fanga í stríði þeirra gegn hryðjuverkum.
Myndin að ofan var tekin við upphaf fundar ráðherranna í Höfða í morgun en Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, tók þar á móti þeim, bauð Rice velkomna og stiklaði á stóru um sögu Höfða.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
