Föstudagur 30.05.2008 - 17:53
- Ummæli
()
Guðmundur Þóroddsson hættir hjá Orkuveitunni og REI
Guðmundur Þóroddsson lætur af störfum forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur frá og með deginum í dag og telja. Um leið lýkur hann störfum sem forstjóri Reykjavík Energy Invest en því starfi hefur hann gegnt undanfarna níu mánuði í leyfi frá störfum hjá Orkuveitunni.
Þetta var niðurstaða stjórnarfundar Orkuveitunnar í dag sem samþykkti samkomulag þessa efnis undirritað af Guðmundi og Kjartani Magnússyni, formanni stjórnar Orkuveitunar. Í fréttatilkynningu Orkuveitunnar um málið kemur ekki fram hvert efni samkomulagsins er að öðru leyti og hvaða kostnað Orkuveitan ber af starfslokunum. Eyjan hefur ekki fengið upplýsingar um það atriði í dag.
Ummæli ()
Birta
Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is