Femínistar: Dómur í Goldfinger- máli sýnir virðingu fyrir æru karla umfram erlendar konur
Femínistafélag Íslands segir að dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Geira í Goldfinger gegn fyrrverandi ritstjóra og blaðamanni tímaritsins Ísafoldar sýni að jafnrétti eigi undir högg að sækja á Íslandi.
Dómurinn gerði blaðamönnunum að greiða veitingamanninum samtals 1,7 milljónir í miskabætur og málskostnað vegna umfjöllunar um vændi og mansal í tengslum við rekstur Goldfinger.
Femínistar segja að dómurinn „endurspegli virðingu fyrir æru íslenskra karla umfram virðingu fyrir erlendum konum, og virðingu fyrir peningum á kostnað mannréttinda.“
Eyjunni barst í kvöld eftirfarandi yfirlýsing frá Femínistafélagi Íslands:
„Í tilefni af dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Ásgeirs Þórs Davíðssonar gegn Jóni Trausta Reynissyni og Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur sendir Femínistafélag Íslands frá sér eftirfarandi ályktun:
Femínistafélag Íslands lýsir undrun og vonbrigðum vegna nýfallins dóms Héraðsdóms Reykjavíkur en í dómnum er stefndu gert að greiða stefnanda 1,7 milljónir króna í miskabætur og málskostnað vegna ærumeiðandi ummæla.
Femínistafélagið telur ljóst á dómi Héraðsdóms að litið hafi verið fram hjá alþjóðlega viðurkenndri skilgreiningu á mansali. Hugtakið mansal er almennt skilgreint sem verslun með fólk, með eða án samþykkis þess, ef salan byggist á varnarleysi viðkomandi. Samkvæmt rannsókn sérfræðinga á samningum íslenskra nektarklúbba við nektardansmeyjar hefur sannast að konur sem starfað hafa á nektarklúbbunum hafi verið seldar mansali. Því er ljóst að Héraðsdómur lítur fram hjá sérfræðiþekkingu á málaflokknum.
Þá þykir Femínistafélagi Íslands sýnt að dómurinn endurspegli virðingu fyrir æru íslenskra karla umfram virðingu fyrir erlendum konum, og virðingu fyrir peningum á kostnað mannréttinda.
Ljóst er að jafnrétti kynjanna á undir högg að sækja á Íslandi.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is