Innvortis æxli reyndist vera 25 ára gamalt sjúkrahúshandklæði
„Við erum með góðar fréttir og slæmar fréttir,“ sögðu læknar við 49 ára gamlan Japana sem hafði gengist undir skurðaðgerð vegna æxlis.
Og sjúklingurinn varð furðu lostinn þegar læknar sögðu honum að „æxlið“ hefði reynst vera 25 ára gamalt sjúkrahússhandklæði.
Sjúklingurinn hafði haft handklæðið innvortis frá árinu 1983, þegar skurðlæknar á Asahi General-sjúkrahúsinu í Chiba, nærri Tokýó, gleymdu því þar þegar þeir skáru hann upp við magasári.
Í rannsóknum, sem maðurinn hafði gengist undir vegna sárra verkja, kom „æxlið“ í ljós. Læknar töldu það vera illkynja átta sentimetra æxli sem yrði að fjarlægja.
„Handklæðið var grænblátt en við vitum ekki hvernig það var á litinn í upphafi,“ sagði talsmaður sjúkrahússins og bætti við að handklæðið hafi verið krumpað í einskonar boltaform.
Yfirmenn Asahi-sjúkrahússins heimsóttu manninn og báðu hann margfaldlega afsökunar en sjúklingurinn, sem vill ekki láta nafns síns getið, hefur ákveðið að fara ekki í mál við spítalann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
