Samstarfshópur um aukið öryggi og friðsæld í miðborginni um helgar
Kormákur Geirharðsson veitingamaður, Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, Kári Halldór, frá íbúasamtökum miðborgar og Jakob Frímann Magnússon, miðborgarstjóri Reykjavíkurborgar, skipa samstarfshóp sem hefur það hlutverk að auka öryggi og friðsæld í miðborg Reykjavíkur um helgar.
Hópurinn var skiopaður á fundi sem um þrjátíu hagsmunaaðilar í miðborg Reykjavíkur sátu í dag fund Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra, Jakobi Frímanni Magnússyni, framkvæmdastjóra miðborgarmála, og Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu. Í fréttatilkynningu úr ráðhúsinu er haft eftir Jakobi Frímanni Magnússyni, framkvæmdastjóra miðborgarmála að á fundinum hafi menn sammælst um að taka höndum saman og ráða bót á því sem betur má fara í miðborg Reykjavíkur. Mikilvægt sé að taka fullt tillit til „sjónarmiða íbúa, rekstraraðila og þeirra sem bera ábyrgð á löggæslu og eftirliti.“
Myndina tók ljósmyndari ráðhússins á fundinum í dag.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is