Lily Allen borin út af Glamour-verðlaunahátíðinni
Lily Allen mætti vel til höfð með nýlega litað bleikt hár á Women of the Year-verðlaunahátíðina sem tímaritið Glamour stóð fyrir.
Það var hins vegar önnur saga þegar hún var borin út ofurölvi af dyravörðum seinna um kvöldið.
Lily hafði hellt í sig kampavíni allt kvöldið og skýldi sér á bak við Glamour-verðlaunagripinn sinn þegar hún var borin út í bíl vegna þess að hún stóð ekki í lappirnar.
„Ég spurði hana hvernig henni liði og hún gat varla staðið upprétt,“ sagði annar partýgestur.
„Ég studdi hana að útganginum, en hún sagði að hana langaði í sígarettu og skakklappaðist í burtu.“
Það var þá sem bróðir hennar Alfie tók við, en þegar hann reyndi að vernda systur sína frá forvitnum augum fólks sem stóð fyrir utan vildi ekki betur til en svo að hann steyptist sjálfur á hausinn.
Lily sá greinilega eftir hegðun sinni og birti afsökunarbeiðni á MySpace síðunni sinni morguninn eftir.
„Ég viðurkenni það, ég var rosalega full í gær, alltof full,“ skrifaði hún.
„Það er ekki sniðugt, mér líður ömurlega og það er bróður mínum Alf að þakka að ég komst heim heilu og höldnu.“
„Krakkar, sýnið ábyrgð þegar áfengi er annars vegar, því annars endið þið eins og ég gerði og það er ekki falleg sjón!“
„Þetta var samt skemmtilegt kvöld – eða það sem ég man af því alla vega.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is