Ráðgjafar McCain: McCain framhald á Bush
Lindsey Graham, einn helsti ráðgjafi og stuðningsmaður John McCain í öldungadeildinni, lýsti því yfir í viðtali við George Stephanopoulos í fréttaskýringaþættinum This Week á ABC sjónvarpsstöðinni í morgun að John McCain myndi “vitaskuld“ fylgja stefnumálum George W. Bush í heilbrigðis og tryggingamálum.
[youtube sKm87MV_u_4]
John Kerry benti á að bandarísk fyrirtæki hefðu ekki lengur efni á að kaupa heilbrigðistryggingar fyrir starfsmenn sína, en flestir bandaríkjamenn treysta á að fá heilbrigðistryggingar í gegn um vinnuveitendur sína. George W. Bush og margir Repúblíkanar hafa haldið því fram að eina lausnin á því vandamáli sé að ríkið styrki almenning til að kaupa sjálft tryggingar á opnum markaði. Demokratar hafa hins vegar bent á að sú lausn muni aldrei geta tryggt að allir hafi heilbrigðistryggingar, og muni þar að auki verða dýrari en ef sett væri upp almannatryggingakerfi sem tryggði öllum, óháð efnahag, aðgang að heilbrigðistryggingum.
John McCain hefur eindregið lagst gegn slíkum hugmyndum og boðað skattaendurgreiðslur sem lausn á heilbrigðistryggingavandanum. Þegar Graham var spurður að því hvort stefna McCain í skatta-, trygginga og heilbrigðismálum væri ekki nákvæmlega sú sama og George W. Bush hefði fylgt undanfarin sjö ár svaraði hann „Já, tvímælalaust“.
Mikill stuðningur fyrir umbótum á heilbrigðistryggingakerfinu
Talið er að 47 milljón Bandaríkjamenn séu án nokkurra heilbrigiðstrygginga og aðrar 50 milljónir hafi ófullnægjandi tryggingar. Þá hefur verið bent á að vaxandi kostnaður við heilbrigðistryggingar sé að sliga fjárhag margra millistéttafjölskyldna. Endurbætur á heilbrigðiskerfi og uppstokkun heilbrigðistrygginga eru meðal mikilvægustu kosningamálanna í haust. Kannanir sýna að aðeins stríðið í Írak og efnahagsmál séu mikilvægari í hugum kjósenda.
Stuðningur við að alríkið komi upp almennum heilbrigðistrygginum hefur vaxið mjög síðan uppskurður á heilbrigðistryggingakerfinu var síðast á dagskrá á níunda áratugnum. Samkvæmt könnun sem birt var í apríl styðja 59% allra bandarískra lækna að alríkið taki ábyrgð á því að allir Bandaríkjamenn hafi heilbrigðistryggingar, en andstaða læknastéttarinnar var ein helsta ástæðan fyrir því að tilraun Hillary Clinton til uppstokkunar heilbrigðistryggingakerfisins rann út í sandinn á tíunda áratugnum.
Í febrúar birti NPR, Harvard School of Public Health og Keiser Family Foundation könnun sem sýndi einnig að 59% almennings styddi að lögbundið væri að allir Bandaríkjamenn hefðu heilbrigðistryggingar ef alríkið tryggði slíkan aðgang.
McCain þarf að sýna kjósendum að það er munur á honum og Bush
Í ljósi þess hversu óvinsæll George W. Bush er hafa stjórnmálaskýrendur bent á að McCain verði að sannfæra kjósendur um að hann stjórn hans myndi í grundvallaratriðum vera ólík Bush og McCain hefur að undanförnu haldið því fram það sé fráleitt að hann yrði beint framhald á valdatíð Bush. Í ræðu sem hann hélt í New Orleans á þriðjudaginn staðhæfði McCain að pólítískir andstæðingar sínir væru að reyna að ljúga að kjósendum að atkvæði greidd sér væri jafngildi þess að óska eftir þriðja kjörtímabili Bush.
Douglas Holtz-Eakin, ráðgjafi McCain segir Obama líkari Bush en McCain
Einn helsti efnahagsmálaráðgjafi McCain Douglas Holtz-Eakin hefur jafnvel reynt að halda því fram að efnahagsstefna sú sem Barack Obama, forsetaframbjóðandi demokrata, muni fylgja myndi framhald á efnahagsstefnu Bush, og McCain því í raun ólíkari forsetanum en Obama. Sú staðhæfing er vitaskuld fráleit. Robert Novak, einn best þekkti íhaldssami dálkahöfundur Bandaríkjanna lýsti því yfir í viðtali við Bloomberg að þetta væri líklega það kjánalegasta sem hann hefði nokkurntímann heyrt, og svo heimskulegt að það væri engin ástæða til að ræða það frekar. Novak taldi þó að McCain gæti tekst að sannfæra kjósendur um að hann væri í grundvallaratriðum ólíkur Bush.
Ekki í fyrsta sinn sem ráðgjafar McCain lofa því að hann hviki hvergi frá efnahagsstefnu Bush
Fyrir mánuði síðan lýsti Roy Blunt, þingmaður Repúblíkanaflokksins fyrir Missouri og annar valdamesti repúblíkani Bandaríkjaþings, því yfir að „vitaskuld“ myndi McCain fylgja stefnu Bush í skattamálum. McCain hefur staðhæft að skattastefna Bush ýti undir hagvöxt, en demokratar hafa gagnrýnt að skattalækkanir forsetans hafi fyrst og fremst gagnast fólki í allra hæstu tekjuþrepunum og leitt til svimandi ríkisskulda og hallareksturs. Þá hefur verið bent á að skattalækkanir þær sem McCain hefur lofað muni koma venjulegu launafólki og millistéttinni jafnvel enn minna til góða en skattalækkanir Bush.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is