Þriðjudagur 10.06.2008 - 16:17 - Ummæli ()

Mun fleiri karlar sækja til lækna í kjölfar kynningarátaks um krabbamein

gurad.jpg Aðsókn karlmanna að Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins náði sögulegu hámarki í kjölfar kynningarátaks um karlmenn og krabbamein sem haldið var dagana 5. til 21. mars. Jafnframt fjölgaði tímapöntunum hjá þvagfæraskurðlæknum á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi verulega í kjölfar átaksins, að sögn Krabbameinsfélagsins.

Að meðaltali greinast árlega um 630 íslenskir karlar með krabbamein, þar af 190 með krabbamein í blöðruhálskirtli, 64 með lungnakrabbamein og 51 með ristilkrabbamein. Horfur þeirra sem greinast með krabbamein á Íslandi eru almennt góðar.
„Það hefur lengi verið áhugaefni okkar hjá Krabbameinsfélaginu að vera virkari í forvörnum gegn krabbameinum karla. Því miður er ekki hægt, enn sem komið er, að bjóða heilbrigðum körlum hópleit að blöðruhálskirtilskrabbameini sem er algengasta krabbamein karla. Hins vegar er mikið ánægjuefni að brátt verður hafin hópleit að þriðja algengasta krabbameini bæði karla og kvenna, ristil- og endaþarmskrabbameini. Það er því ánægjulegt hve vel karlmenn brugðust við þessu fræðsluátaki og vonandi sýna þeir jafnmikla árvekni áfram og sinna hópleitinni þegar hún hefst,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands í fréttatilkynningu.

Viðbrögð fyrirtækja og almennings við sölu á slaufum í tengslum við átakið voru mjög góð, að mati Krabbameinsfélagsins. Kaupþing var aðalstyrktaraðili átaksins en samstarfsaðilar voru Margt smátt, Sambíóin, Frumherji, Eymundsson, Kaffitár og Pósturinn.

Myndin var tekin í mars þegar Guðrún Agnarsdóttir seldi ráðherrum þrjár fyrstu slaufurnar í tengslum við átakið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is