Sendinefnd frá borgarstjórn til Færeyja
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri er nú staddur í Færeyjum í erindum Reykjavíkurborgar ásamt borgarfulltrúunum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, og Björk Vilhelmsdóttur og mökum þeirra og einnig er Gunnar Eydal, skrifstofustjóri borgarinnar með í för í heimsókn sem stendur til föstudags. Fyrir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, fráfarandi formanns borgarráðs, og Guðrúnu Kristjánsdóttur, eiginkonu hans, er þetta jafnframt brúðkaupsferð en þau gengu í hjónaband á sunnudag.
Þetta er formleg heimsókn til þess að rækta einhver elstu og nánustu vinabæjartengsl sem Reykjavíku stendur í en borgarstjórar Reykjavíkur, Þórshafnar og Nuuk á Grænlandi heimsækja reglulega hverjir aðra og hittast að þessu sinni í Þórshöfn ásamt föruneyti. Í heimsókninni verður fundað vegna úthlutunar úr Samstarfssjóði Nuuk-Reykjavíkur-Þórshafnar sem veitir menningartengda styrki og er Ólafur F. formaður sjóðsstjórnarinnar en Gunnar Eydal framkvæmdastjóri.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is