Naomi Campbell játar sig seka
Ofurfyrirsætan geðstirða, Naomi Campbell, mætti fyrir rétt í London í morgun þar sem hún játaði sig seka í fimm ákæruliðum.
Campbell, sem þykir mikið skass, gekk berseksgang í vél frá British Airways á leið til Los Angeles. Þegar flugstjórinn tilkynnti að nokkrar töskur hefðu orðið eftir á Heatrow, sturlaðist daman og krafðist þess að flugstjórinn færi persónulega á eftir töskunum hennar auk þess sem hún kallaði hann kynþáttahatara. „Þú myndir aldrei koma svona fram við mig ef ég væri hvít,“ var haft eftir henni.
Campell var handjárnuð og færð úr vélinni. Þá veittist hún að lögreglumanni og starfsfólki British Airways en fyrir þetta er hún m.a. ákærð.
Campbell, sem er 38 ára gömul, á yfir sex mánaða fangelsisdóm yfir höfði sér og gæti þurft að greiða allt að £5000 í sekt.
Meira um málið má lesa á heimasíðu Sky News.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is