Föstudagur 20.06.2008 - 15:07 - Ummæli ()

Sautján óléttar unglingsstúlkur

babys.jpgUpp hefur komið sérstakt mál í Gloucester High School í Massachusetts þar sem stór hópur unglingsstúlkna tók sig saman um að verða barnshafandi. Nú eru stelpurnar í hópnum sautján talsins og eru þær allar undir sextán ára.

Spurningar vöknuðu meðal kennara skólans þegar hver stúlkan á fætur annari varð ólétt, en yfirleitt voru að meðaltali fjórar stúlkur barnshafandi á önn. Þegar sú tala steig upp í sautján voru þær teknar á teppið og þar viðurkenndu þær ein af annari að þetta væru samantekin ráð.

Þegar stelpurnar báru hvor annarri fréttirnar gerðu þær „high -five“ og kepptust við að skipuleggja „babyshowers“ saman, en það er bandarískur siður sem er sambærilegur skírnarveislum hérlendis.

Barnsfaðir einnar stúlkunnar er 24 ára gamall heimilisleysingi.

Ástæðan að baki þessarar undarlegu ákvörðunar nemendanna mun vera almennur skortur á sjálfstausti og það að þær koma flestar frá ástlausum heimilum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is