Bloggheimar loga vegna doberman-hvolps
Fátt virðist koma jafn illa við blogghöfunda landsins og fréttir af níðingslegri meðferð saklausra dýra. Bloggheimar loga nú af færslum þeirra sem tjá sig um meðferðina á doberman-hvolpnum sem fannst urðaður lifandi í hrauninu við Kúagerði fyrir helgi.
Örfá dæmi:
„Djöf…… mannvonska og viðbjóður. Það er ekki oft sem ég pústa hérna inni en…..Ég á ekki til eitt aukatekið orð – hvað er að fólki (ef fólk skal kalla) sem gerir svona? Ég skal alveg viðurkenna þegar ég las þetta- sá staðsetninguna þar sem þetta átti sér stað ……þá kom viss aðili upp í huga minn. Ég verð svo reið þegar ég heyri svona – að ég ræð varla við mig!! Hversu lágt er hægt að leggjast??? Að ráðast á algjörlega varnarlaust dýr sem getur sér enga björgun veitt!!
OK, ok ég verð að anda inn og anda út og reyna að róa mig því ég er alveg á nippinu sko.“
—
„Urða kvikindið. Ekkert annað að gera en að urða svona menn og það strax. Þetta eru skepnur þeir sem að gera svona eru haldnir einhverjum ólýsanlegum hvötum að pína.
Athugum það að maðurinn er skepna líka, þannig að hverja vilja svona menn urða næst?
—
„Ekki er hægt að sætta sig við svo hrottalega meðferð á dýri og mikilvægt að opinbera nafn þess sem ætlaði að kviksetja hundinn.
Dýravinum öllum er brugðið vegna þessa máls – reiði alls almennings hefur komið vel fram. Eðlilegt er að fólk sýni reiði sína vegna svo hrottalegrar framkomu við dýr sem getur ekki varið sig. Þetta er ómannúðlegur og grimmilegur níðingsskapur af verstu sort.
—
„RÆFILL. Ég á bara eitt orð núna RÆFILL, það sem þú gerðir, hver sem þú ert, hvað sem þú ert, þú ert RÆFILL.“
—
„Það sem fær menn til að fremja svona ódæðisverk eins og að misþyrma hvolpinum í Kúgagerði, hlýtur að kalla á ítarlega skoðun á þessum einstaking sem átti hvolpinn.
Kannski er um að ræða útlending sem hefur ekkert vitað um hin Íslensku lög og bara notað aðferðir sem þekktar eru í sínu heimalandi?“
Guðmundur Óli
—
„Sá aðili sem fór með litla hundinn út í hraun á Suðurnesjum og gróf hann undir stórum steinum er AUMINGI. Ég fékk alveg fyrir hjartað þegar ég sá þessa frétt í sjónvarpinu í kvöld. Aumingja hundurinn var svo máttvana og illa farinn eftir þessa meðferð að hann missti þvag þegar hann var settur á gólfið og gat þá ekki einu sinni staðið í lappirnar. Þetta er MJÖG gróft brot á dýraverndarlögum og skil ég ekki hvaða heigull gæti gert litlum hundi þetta.
Ef þú lest þetta blogg þá máttu vita það að þú ert AUMINGI OG RÆFILL.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is