Saudi Arabar auka framleiðslu, samt hækkar olían
Olíuverð hækkar aftur á mörkuðum í morgun og stóð í 136,60 dölum á tunnu þrátt fyrir ákvörðun Saudi Arabíu, stærsta olíuútflytjanda heims, um að auka hráolíuframleiðslu sína um 200 þúsund tunnur á dag, upp í 9,7 milljónir tunna.
Fréttir af árásum skæruliða í Nígeríu á starfsmenn og frameiðslutæki olíufélaga þar virðast hafa eytt þeim verðlækkunaráhrifum sem yfirlýsing Saudi Araba hefði haft, enda er samdrátturinn í olíuframleiðslu Nígeríu vegna skemmdarverkanna meiri en viðbótin í framleiðslu Saudi Araba, eða a.m.k. 250 þúsund tunnur. Hermdarverkamenn í Nígeríu tilkynntu í dag að þeir hefðu ákveðið að hætta árásum sínum frá og með morgundeginum, en það virtist engin áhrif hafa.
Spennu í samskiptum Ísraels og Írans er einnig kennt um hækkunina í morgun.
Neyðarfundi olíuframleiðsluríkjanna með helstu olíunotendaríkjum í Jeddah um helgina lauk í hálfgerðri upplausn, samkvæmt frétt The Times í morgun. Haft er eftir markaðssérfræðingi að Saudi Arabar hefðu þurft að tilkynna miklu meiri framleiðsluaukningu, eða um 500 þúsund tunnur til að knýja fram lækkun á mörkuðum.
Olíuráðherra Saudi Arabíu, Ali Al-Naimi, segist sannfærður um að jafnvægi framboðs, eftirspurnar og framleiðslu sé ekki ráðandi þáttur olíverði. Hann segir birgðastöðu markaða eðlilega en að allir þurfi þó að leggja sitt lóð á vogarskálarnar.
Ásakanir gengu milli stjórnmálamanna á fundinum í Jeddah. Olíuframleiðsluríkin skella skuldinni á spákaupmennsku en Vesturlönd, einkum Bandaríkin segja sökina liggja í ónógri framleiðslu og mikilli eftirspurn.
Gordon Brown, forsætisráðhera Breta, sem var á fundinum lagði til að málsaðilar gerðu mér sér sáttmála, „new deal“, þar sem olíuframleiðlsuríkjunum yrðu boðin fjárfestingatækifæri á Vestlöndum í skiptum fyrir aukið aðgengi að olíulindum miðausturlanda.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is