Þriðjudagur 24.06.2008 - 08:29 - Ummæli ()

Hvamms- og Holtavirkjanir samþykktar í hreppsnefnd

holtavirkjun.jpgHreppsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum í gærkvöldi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins 2004-2016 varðandi Hvamms- og Holtavirkjun.

Morgunblaðið skýrir frá þessu í dag. Gunnar Örn Marteinsson oddviti segir í samtali við blaðið að í breytingunni felist samþykki fyrir því að virkjanirnar tvær sem fyrirhugaðar eru í neðri hluta Þjórsár komi inn í aðalskipulag sveitarfélagsins.

Breytingin fer nú til umsagnar hjá Skipulagsstofnun.

Breytingartillagan var til kynningar frá 18. janúar til 15. febrúar 2007 með athugasemdafresti til 1. mars í fyrra. Þá bárust athugasemdir frá 279 einstaklingum og 8 lögaðilum í 92 bréfum.

Gunnar Örn kveðst reikna með að Landsvirkjun muni sækja um virkjanaleyfi í framhaldinu. Að hluta til er Landsvirkjun búin að ganga frá samningum við þá
landeigendur sem verða fyrir mestri skerðingu á landi, að sögn Gunnars.

Sigþrúður Jónsdóttir náttúrufræðingur í samtökunum Sól á Suðurlandi sem lagst hafa gegn virkjununum segir samþykkt hreppnefndarinnar „algjörlega ömurleg tíðindi að þetta skuli vera verðmætamat þeirra.“

Sigþrúður telur fjarri því að samþykki hreppsnefndar endurspegli vilja íbúanna á svæðinu. Mikil andstaða væri við virkjanaáformin.

Stærð Hvammsvirkjunar er áætluð 80 MW og Holtsvirkjunar 50 MW.

Aðalskipulag í Flóahreppi vegna Urriðafossvirkjunar, þriðju virkjunar Landsvirkjunar í neðri hluta Þjórsár, er enn til umfjöllunar hjá hreppsnefnd Flóahrepps. Nær allir landeigendur á austurbakka Þjórsár á vikjunarsvæði hennar hafa formlega lýst sig andvíga fyrirhugaðri virkjun þar.

Myndin (Landsvikjun) er af áhrifasvæði Holtavirkjunar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is