Garðar Thor aðstoðar Cherie Blair – Söng fyrir þúsundir á Trafalgartorgi
Garðar Thor Cortes söng á styrktartónleikum fyrir Loomba sjóðinn sem haldnir voru á Trafalgar- torgi í Lundúnum í gær.
Tilgangur sjóðsins er að aðstoða börn sem misst hafa feður sína eða eru í umsjá móður sinnar af öðrum ástæðum til náms, aðallega á Indlandi. Forseti sjóðsins er Cherie Blair eiginkona Tony Blair fyrrum forsætisráðherra. Hjónin þekkja vel til Garðars enda hann sungið áður fyrir þau, að sögn Einars Bárðarssonar skipuleggjanda.
Þúsundir manna léttu fara vel um sig á Trafalgar torginu í dag enda veðrið með eindæmum gott. Garðar söng þrjú lög og tóku áhorfendur honum vel og fögnuðu flutningum hressilega. Fjöldi annarra atriða voru einnig á dagskrá og stóð viðburðurinn í tvo tíma.
Næsta plata Garðars kemur út á Íslandi og í Bretlandi mánudaginn næsta 30. júní. Sú síðasta var tilnefnd til Bresku tónlistarverðlaunanna sem hljómplata ársins en hún fór beint í fyrsta sæti á vinsældalistans yfir klassískar hljómplötur.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
