Lögbann á hringtorgið
Lögbann hefur verið sett á framkvæmdir við nýtt hringtorg á Nýbýlavegi við Lund í Kópavogi að kröfu íbúa fjölbýlishúss við veginn. Þeir hafa staðið í deilum við Vegagerðina og Kópavogsbæ vegna færslu Nýbýlavegs sem þeir telja að sé nær húsinu heldur en deiliskipulag segir til um.
Lögbannið nær til afmarkaðs svæðis kringum Lund 1 og þýðir stöðvun frekari framkvæmda við veginn á um 150 m kafla næst húsinu. Kröfu húsfélagsins í Lundi 1 um að loka fyrir alla umferð til vesturs um hringtorgið var hins vegar hafnað.
Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri segir í samtali við 24 stundir í dag, að Vegagerðin geti ekki annað en hlýtt lögbanninu og að verið sé að skoða hvort hægt sé að koma til móts við íbúana. „Það er ekki mikið rými til þess að breyta miklu. Það er ekki hægt að færa hringtorgið en það er verið að skoða hvort að ekki sé hægt að minnka það, en það gæti bitnað á umferðaröryggi.“
Gunnar segir að Vegagerðin telji sig hanna og byggja veginn í samræmi við deiliskipulag. „Það er Kópavogsbær sem gerir þetta skipulag. Við getum hvorki né megum annað en að vinna eftir því,“ segir hann.
Kópavogsbær sendi frá sér fréttatilkynningu í gær þar sem segir lögbannið að koma veg fyrir færslu vegarins fjær húseigninni „og hindri jafnframt frágang sem ætlaður er til að tryggja öryggi, einkum gangandi og hjólandi vegfarenda. Framkvæmdum við Nýbýlaveg að öðru leyti verður haldið áfram.“
Kópavogsbær telur framkvæmdirnar rúmast innan skipulags og mun mótmæla lögbanninu komi til staðfestingarmáls fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is