Megan Mullally skilur ekkert í nektartilboðum
Megan Mullally, sem skaust upp á stjörnuhimininn sem hin drykkfellda og siðlausa Karen Walker í sjónvarpsþáttunum um Will og Grace, segist ekkert skilja í því að henni séu sífellt boðin hlutverk sem krefjast þess að hún sé nakin.
Leikkonan, sem nú er 49 ára, fór nýlega með gestahlutverk í þættinum Boston Legal, þar sem hún kom nakin fram.
„Ég er ekki þessi nakta týpa,“ sagði hún í viðtali við WENN.
„Ég þurfti að vera nakin í þættinum.“
„Ég þurfti að fara úr öllum fötunum fyrir framan James Spader,“ en James Spader fer með eitt aðalhlutverkanna í Boston Legal.
„Þeir sögðust ætla að hafa lokaðan aðgang þegar atriðið yrði tekið upp, en þegar að því kom voru eitthvað um tuttugu og fimm karlmenn á staðnum,“ sagði Megan enn fremur.
Það sem Megan furðar sig þó mest yfir er að hún skuli aldrei hafa verið beðin að fækka fötum á sínum yngri árum.
„Af hverju er ég alltaf beðin um að vera nakin – og af hverju núna, spyr ég bara,“ sagði hún.
„Ég verð fimmtug í nóvember og ég var að taka upp prufuþátt fyrir aðra sjónvarpsstöð og þar þurfti ég líka að vera nakin.“
„Af hverju var ég ekki beðin um þetta þegar ég var 26 ára og ennþá sæt.“
„Hvers vegna er allt í einu núna svona mikil eftirspurn eftir því að ég fari úr fötunum.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is