Dagbók lögreglunnar í Reykjavík eftir erilsama nótt
Þetta var annasöm nótt hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Sumarnóttin virðist hafa farið nokkuð illa í suma borgarbúa,“ segir lögrelan.
Um 200 mál voru færð til bókar, þar á meðal hnífstunga og fimm líkamsárásarmál, ölvunarakstur og eftirför, sem endaði með því að lögreglubílinn ók utan í bíl ökuþórsins, sem valt og lenti utan vegar.
Eftirfarandi eru helstu atriði úr færslubók lögreglunnar eftir nóttina. Myndin er úr vefmyndavél Eyjunnar í Bankastræti, tekin kl. 5:45 í morgun.:
· Kl. 22:04 í gærkvöldi var tilkynnt um aðfinnsluvert aksturlag á Toyotu Landcrusier jeppa á Suðurlandsvegi, er lögreglan gaf bifreiðinni stöðvunarmerki við Rauðavatn sinnti ökumaður því engu og jók hraðan ók suður Breiðholstbraut, fram úr bílum öfugu megin og inn í Árbæinn. Þar var ekið á ofsahraða eða allt að 100 km/klst þar sem hámarkshraði er 30 km klst, ökumenn og gangandi vegfarendur áttu fótum sínum fjör að launa að forða sér frá. Áfram var haldið á mikilli ferð Rofabæ og inn á Bæjarháls þaðan á Höfðabakka og austur Vesturlandsveg að Grafarholti. Ekið inn í Grafarholtið og engu skipti þótt lögreglumenn settu upp lokanir og þrengingar, bifreiðinni var miskunarlaust ekið yfir kanta, yfir hringtorg, móti rauðu ljósi upp á gangstéttir og öfugt á móti aksturstefnu. Eftirförin barst aftur inn á Vesturlandsveg í átt að Mosfellsbæ. Í hringtorgi við Skarhólabraut tóks Lögreglu loks að hefta för bifreiðarinna með þvi að aka utan í hana, við það valt bifreiðin og hafnaði utan vegar. Ökumann sakaði ekki og var hann handtekinn og gistir nú fangageymslur Lögreglu. Hann var í annarlegu ástandi. Bifreiðin var tilkynnt eftirlýst stolin fyrr um daginn. Ökumaður bíður yfirheyrslu er af honum rennur víman.
· Þá sinnti annar ökumaður ekki stöðunarmerkjum Lögreglu í Hafnarfirði og ók gegn rauðu ljói í tilraun sinni til að sleppa frá Lögreglu í Viðibergi stöðvaði hann loks og reyndi að komast burtu á hlaupum. Lögreglumenn fráir á fæti hlupu ökumanninn léttilega uppi og var hann flutter á lögreglustöð og sviptur ökuréttindum til ð aka bifreið næstu mánuði
· Alls voru 6 aðilar teknir grunaðir um ölvun við akstur
· 5 árekstrar voru tilkynntir til lögreglu, þar af var einn aðili af erlendu bergi brotinn grunaður um ölvun við akstur. Hann lenti í árekstri við húsið að Öldugötu 44 í Hafnarfirði, það var eitthvað að þvælast fyrir honum.
· 5 líkamárásarmál voru tilkynnt til Lögreglu. Í einu þeirra voru 8 Litháar að slást við Keiluhöllina. 7 þeirra voru handteknir og færðir í fangageymslu, einn var fluttur á Slysadeild með höfuðáverka og brotnar tennur.
· Lögregla var send í íbúðarhúsnæði í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í nótt þar sem tilkynnt var um hnífstungu. Svo virðist sem 5 karlmenn af erlendu bergi brotnir hafi ráðist inn á Íslending sem býr í einu af leiguherbergjunum í húsnæðinu. Hann varðist árásinni með hnífum og særði einn, sá var fluttur á slysadeild með áverka á brjósti. Hnífamaðurinn handtekinn og gistir fangageymslur.
· Þá var mikill erilli í öðrum málum eins og hávaðaútköllum og ágreiningsmálum allskonar. Sumarnóttin virðist hafa farið nokkuð illa í suma borgarbúa.
· Á Nýbýlavegi við Ræktunarstöðina er grunur um að kveikt hafi verið í gúmmíbát sem brann til kaldrakola
· Nokkur fjöldi fólks var í miðborginni í nótt og talsverð ölvun.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is