Sunnudagur 06.07.2008 - 14:09 - Ummæli ()

Hælisleitendur á Íslandi hafa aldrei verið fleiri – 40 bíða úrlausnar

haelisleitendur.jpgHælisleitendur á Íslandi hafa aldrei verið fleiri. Um 40 hælisleitendur bíða þess að mál þeirra skýrist. Þetta kom fram í viðtali við Kristján Sturluson framkvæmdastjóra Rauða krossins í hádegisfréttum Útvarps í dag.

Kristján segir brýnt að hælisleitendur hafi tök á að stunda vinnu og vera virkir á meðan þeir bíða úrlausnar sinna mála. Kerfið hefur ekki leyft slíkt.  Félagsþjónusta Reykjanesbæjar, sem Útlendingastofnun hefur gert samning við um að annast fólkið,  hefur þurft að fjölga gistirýmum. Sumir hælisleitendanna hafa verið hér á landi í á fjórða ár. Kristján segir erfiðast fyrir fólkið að hafa ekkert fyrir stafni, lífið snúist um bið og óvissu.

Á vef Rauða krossins segir að af 40 ákvörðunum eða úrskurðum í hælismálum á árinu 2007 voru 24 einstaklingar sendir tilbaka á grundvelli svokallaðrar Dublin reglugerðar. Þremur var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum og þrettán umsóknum var hafnað og/eða neikvæð ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Þá drógu sjö einstaklingar hælisumsókn sína til baka eða hurfu af landi brott áður en ákvörðun var tekin í máli þeirra. Engum hælisleitenda var veitt staða flóttamanns á árinu. Í lok árs 2007 voru alls til meðferðar hjá stjórnvöldum mál 31 hælisleitenda sem sótt höfðu um hæli á árunum 2005-2007 en málsmeðferð hælisumsókna getur tekið langan tíma, allt að nokkrum árum í lengstu tilvikunum.

„Þó það sé ljóst að í Dublin reglugerðinni sé ákveðin heimild til að taka ekki umsóknir til efnislegrar meðferðar, heldur vísa hælisleitendum til þess Evrópulands sem ber ábyrgð á þeim skv. reglugerðinni, telur Rauði krossinn að í sumum tilvikum sé rík ástæða til að taka umsóknir til efnislegrar meðferðar,” segir Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða krossins.

Rauði krossinn vinnur að málefnum hælisleitenda í samvinnu við stjórnvöld og í umboði Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Þá hefur Rauði kross Íslands lykilhlutverki að gegna við hingaðkomu flóttamanna, sem íslenska ríkið býður hingað til lands, venjulega í 20 – 30 manna hópum. Í mörgum löndum hefur Rauði krossinn tekið að sér margvísleg störf sem tengjast flóttamönnum og hælisleitendum, enda standa þeir oft berskjaldaðir við komuna í ókunnugt land.

Myndin er af vef Rauða krossins frá ferð hælisleitenda og sjálfboðaliða Rauða krossins í Bláa Lónið í júní.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is