Fimmtudagur 10.07.2008 - 09:20 - Ummæli ()

Nýja tillagan um Laugaveg 4-6

laugavegur4-6.jpgSkipulagsráð Reykjavíkur samþykkti í gær nýja tillögu um húsin við Laugaveg 4 og 6.

Í tilkynningu frá ráðinu segir m.a. að götumyndin við neðanverðan Laugaveg, frá fyrri hluta 20. aldar, sé varðveitt með endurbyggingu Laugavegar 4 og 6 samhliða uppbyggingu á reitnum, þar sem gert er ráð fyrir góðu verslunar- og þjónustuhúsnæði.

„Ytra byrði gömlu húsanna verður fært í það horf sem það var á fyrri hluta 20. aldar. Gerð verður létt tengibygging sem tengir saman gömlu húsin, með kjallara, einni hæð og annarri inndreginni. Ábendingar frá Minjasafni Reykjavíkur og Húsafriðunarnefnd voru hafðar til hliðsjónar við gerð tillögunnar.“

Innangengt verður milli húsanna við Laugaveg og hússins við Skólavörðustíg.

Nýja deiliskipulagstillagan fer nú í venjulegt auglýsingaferli.

laugav4-6.jpg


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is