Surtsey og sjö önnur undur náttúrunnar
Surtsey var sett á heimsminjaskrá UNESCO í vikunni. Við sama tækifæri komust sjö önnur náttúrufyrirbæri á skrána.
Surtsey er sögð einstök rannsóknarstöð þar sem vísindamenn hafi getað fylgst náið með þróun lífs frá því að gosinu lauk.
Rannsóknir á lífinu í Surtsey hafa staðið yfir allt frá árinu 1964. Fylgst hefur verið með tilkomu gróðurs, fjöru- og fuglalífs í eyjunni frá þeim tíma. Alls hafa greinst 89 tegundir af fuglum í Surtsey en þar af eiga 57 tegundir sér fasta búsetu á Íslandi.
Náttúrufyrirbærin átta sem nú voru sett á heimsminjsakrána eru eftirfarandi:
Joggins steingervinga-klettarnir (Kanada)
Sanqingshan-fjalls þjóðgarðurinn (Kína)
Lónin í Nýju Kaledóníu: Fjölbreytt lífríki kóralrifanna (France)
Saryarka steppu- og vatnasvæðið (Kazakhstan)
Verndunarsvæði kóngafiðrildisins (Mexikó)
Sardona fjöll í Ölpunum Myndun fjalllendis við skorphreyfingu (Sviss)
Socotra Eyjaklasinn (Jemen)
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is