Mánudagur 14.07.2008 - 22:17 - Ummæli ()

Evrumálin: Fleiri viðbrögð

isg-percy.jpgPercy Westerlund, yfirmaður fastanefndar framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi, segir að Íslendingar geti ekki tekið upp evru án þess að ganga í Evrópusambandið. Ekki sé hægt að taka upp evruna einhliða. Westerlund sagði í viðtali í kvöldfréttum Útvarps að ekki sé hægt að taka upp evruna á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.

Westerlund sagði að þeir sem nú haldi því fram að það sé mögulegt fyrir Ísland að taka upp evru einihliða fari villur vegar. Dæmi séu um að Balkanríki hafi tekið upp evru einhliða en það sé í sambandi við ákvörðun Sameinuðu þjóðanna vegna átaka og alvarlegs öryggisástands; það séu ríki þar sem efnahagurinn sé í rúst.

Útilokað sé útilokað að Íslands, eitt ríkasta ríki í Evrópu, geri slíkt. Það sé alveg ljóst að notkun evrunnar sé beintengd aðild að Evrópusambandinu.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lagði líka sitt lóð á vogarskálarnar í umræðum dagsins um hugmyndina um evruvæðingu án ESB aðildar. Hún sagði í kvöldfréttum Sjónvarps brýnast að Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar kannaði hvar hagsmunum Íslands væri best borgið. Hún vill að leiðin sé könnuð en efast um að til sé slík skemmri skírn án inngöngu í ESB.

„Það þarf ekki annað en velta því fyrir sé að til þess að ESB geti tekið upp tvíhliða viðræður um þetta við Íslendinga um þessa sérmeðferð þá þurfa 27 aðilar í framkvæmdastjórn ESB að samþykkja það, sem þurfi síðan allir umboð ríkja sinna sem mörg eru í einhvers konar aðlögunarferli að myntbandalaginu.“

Ingibjörg Sólrún spyr hvort menn telji að það sé sennilegt að öll þessi ríki séu tilbúin að samþykkja að Ísland „stökkvi þannig framfyrir og beint inn í myntbandalagið.“

Og Valgerður Sverrisdóttir varaformaður Framsóknarflokksins segir á Vísir.is  vandræðagang einkenna forystu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum og tillögu Björn Bjarnasonar vanhugsaða.

„Miðað við Björn Bjarnason er þetta sett fram vanhugsað,“ segir Valgerður og veltir fyrir sér hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé að klofna.

„Það sem gerir þetta sérstaklega athyglisvert er að Björn er í Davíðs-liðinu og nær Davíð heldur en nokkur annar ráðherra í ríkisstjórninni. Engu að síður setur hann þetta fram,“ segir Valgerður.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is