Olís lækkaði hækkun dagsins
Olís endurskoðaði verðhækkanir sínar á eldsneyti í dag til samræmis við mun minni lækkun hinna olíufélaganna.
Olís hafði tilkynnt verðhækkun bensínlítrans um 6 kr. og dísilolíu um kr. 7,50 en eftir að N1 og Skeljungur tilkynntu um tveggja krónu lækkun bensínlítrans færði Olís verðið hjá sér niður að verði hinna.
Olís segist hafa lækkað verðið í síðustu viku en hækkað aftur nú vegna verðþróunar á heimsmarkaði. Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri vörustýringarsviðs Olís, segir í samtali Viðskiptablaðið í dag að krafa neytenda sé sú að verð lækki strax samhliða lækkunum á heimsmarkaði og það gangi í báðar áttir.
Eldsneytisverð hjá Olís, N1 og Skeljungi hækkaði því í dag almennt um tvær krónur. Algengasta verð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu er nú tæplega 177 kr. á lítrann.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is