Tóti Tönn með 44 punda lax
Þórarinn Sigþórsson tannlæknir, setti í risalax í Yokanka ánni á Kolaskaga í Rússlandi þann 30 júni s.l. Laxinn var viktaður af leiðsögumanni 44 pund og er sagður sá stærsti sem veiðst hefur þar á flugu. Það sem meira er að þeir vita ekki til þess að svo stór lax hafi veiðst í ánni s.l. 11 ár a.m.k.
Þórarinn sleppti ferlíkinu.
Frá þessu er sagt á veiðivefnum Vötn og veiði. Í samtali við vefinn sagði Þórarinn að laxinn hefði tekið Cascade nr. 6. “Þetta var löng og erfið viðureign eins og hver önnur barátta við stórlaxa. Það þarf gríðarlega mikla tækni til að ná svona ferlíki á land. Það þýðir ekkert að reyna að halda við, maður leyfir honum að fara og vonast til að hann snúi við að honum langi ekkert að fara úr hylnum. Eftir baráttuna fórum við með þennan vin minn í læk sem rann í ánna, þar var kaldara vatn og meira súrefni. Eftir klukkustundarmeðferð var hann kominn með nægan mátt og gat þá synt aftur út í hylinn sinn.”
Nánar hér á vefnum Vötn og veiði.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is