Vegvísir Björns um Evrópuumræðuna
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fer yfir landslag Evrópumálaumræðu undanfarinna vikna eins og hann sér það í samantekt á vefsíðu sinni í dag og tekur saman helstu punkta umræðunnar á eftirfarandi hátt í lok greinarinnar:
„Hér hefur verið stiklað á stóru í umræðum síðustu vikna um Evrópumál. Stiklurnar eru dágóður vegvísir og þær sýna:
Aðild að Evrópusambandinu:
Sjálfstæðisflokkur á móti.
Framsóknarflokkur skilar auðu.
Samfylking með.
Þjóðaratkvæðagreiðsla:
Allir með.
Framsóknarflokkur — tvær atkvæða greiðslur.
Samfylking tvær til ein — tvær, ef unnt er að skjóta máli þannig út af þingi.
Sjálfstæðisflokkur að minnsta kosti ein, enda móti ríkisstjórn og þing skýra tillögu.
Stjórnarskrárbreyting:
Allir segja hana nauðsynlega.
Þorgerður Katrín telur nauðsynlegt að breyta stjórnarskránni til að unnt sé að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Guðni bendir á, að unnt sé að ákveða þjóðaratkvæðagreiðslu með lögum án stjórnarskrárbreytinga.
Breyta verður stjórnarskránni vegna framsals á fullveldi.
Undirrót núverandi spennu í umræðunum:
Staða krónunnar og spurningin um annan gjaldmiðil.
—
Lokaorð samantektar Börns eru úr ræðu Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem ræddi um Evrópumál á fundi sjálfstæðismanna í Valhöll 15. maí sl.:
„Upptaka evru og aðild að ESB er svo einn kosturinn enn. Ef í ljós kæmi eftir þessa athugun fremstu sérfræðinga okkar að þetta sé eina færa leiðin til framtíðar, þá skoðum við það að sjálfsögðu. Fyrr er það ekki tímabært.“
Samantektin í heild á vefsíðu Björns.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is