Þriðjudagur 15.07.2008 - 13:12 - Ummæli ()

Whitney Houston þurfti söngtíma fyrir nýjustu plötu sína

79684617.jpgOft hefur verið talað um Whitney Houston sem eina bestu söngkonu nútímans og henni var meira að segja gefið viðurnefnið „The Voice,“ eða „Röddin.“

Það voru því margir hissa þegar hún mætti í hljóðver fyrir nýjustu plötuna sína og gat ekki einu sinni náð háu tónunum í laginu I Will Always Love You.

Áralöng eiturlyfjanotkun og reykingar höfðu gert það að verkum að raddböndin í Whitney voru úr sér gengin, og hún hljómaði eins og hún myndi sæma sér betur á Ölveri frekar en á sviði fyrir framan þúsundir aðdáenda.

Tónlistarframleiðandinn Clive Davis fór því fram á það að hún væri send í söngtíma.

„Hún reykti mikið og tók mikið af eiturlyfjum,“ er haft eftir aðila sem þekkir til málsins.

„Rödd hennar var næstum óþekkjanleg.“

„Það er búið að eyða þúsundum dollara í að þjálfa hana upp í það sem hún var áður.“

Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að söngtímarnir virðast hafa virkað og sagt er að Whitney hljómi mjög vel á nýju plötunni sem beðið er með eftirvæntingu og mun koma út í nóvember.

„Hún hljómar frábærlega vel núna,“ sagði uppljóstrarinn.

„Hún á eftir að gera allt vitlaust.“


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is