Fimmtudagur 17.07.2008 - 08:01 - Ummæli ()

Ástandið var skelfilegt segir kennari Lárusar

larus1.jpg„Einelti er skelfilegt,“ segir Erla Skaftadóttir, fyrrverandi kennari Lárusar Stefáns Þráinssonar í viðtali við Fréttablaðið í dag. Lárus svipti sig lífi í lok síðasta mánaðar, 21 árs gamall.

Ingibjörg Helga Baldursdóttir, móðir hans segir ástæðuna fyrir dauða hans fyrst og fremst það gegndarlausa einelti sem hann varð fyrir í grunnskóla. Foreldrar Lárusar segja son sinni aldrei hafa náð sér á strik eftir þá reynslu.

Erla tók við bekknum sem Lárus var í þegar hann var í 6. bekk eða ári eftir að eineltið hófst. Hún segir ástandið í bekknum hafa verið mjög erfitt og viðkvæm börn, eins og hann var, hafa liðið mjög. Haldnir hafi verið fundir vegna ástandsins sem orðið hafi til þess að ástandið skánaði tímabundið en fljótlega hafi allt verið komið í sama farið. „Þegar svona er komið getur verið eina lausnin að börn skipti um skóla,“ segir hún. Lárus var sendur í einkaskóla eftir að hann lauk 7. bekk, en þá hafði hann sætt einelti í þrjú ár. Hún viðurkennir að slíkt sé mjög ósanngjarnt gagnvart börnunum sem verði fyrir eineltinu en það geti þó stundum verið eina lausnin.

Erla segir skóla og foreldra þurfa að vera mjög vakandi fyrir líðan barna. Að auki bendir hún á að foreldrar verði að vera gagnrýnir á sín eigin börn og koma í veg fyrir að þau vinni öðrum börnum skaða. Hún segir að mjög erfitt sé að minnast þessa tíma.

„Ég dáðist að styrk foreldra Lárusar á þeim tíma sem þau háðu baráttuna fyrir því að sonur þeirra fengi að vera í friði. Ég dáist enn að þeim og vil leggja þeim lið,“ segir Erla en foreldrar Lárusar hafa stofnað minningarsjóð um son sinn sem þau vilja nota í baráttu sem þau ætla að heyja gegn einelti í von um að öðrum börnum verði bjargað.

Einnig var rætt var við Ingibjörgu Helgu Baldursdóttur, móður Lárusar í Kastljósi í gær.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is