Madonna vill sameina Justin og Britney á sviði
Madonna er búin að fá hugmynd um það hvað gæti verið rúsínan í pylsuendanum á Sticky & Sweet tónleikaferðalagi hennar sem hún leggur upp í fljótlega.
Hún vill sameina fyrrum elskendurna Justin Timberlake og Britney Spears og fá þau til þess að koma saman fram á sviði.
Britney hefur nú þegar tekið upp myndband sem verður sýnt á tónleikum Madonnu, og Madonna hefur einnig beðið hana um að birtast óvænt í eigin persónu á einhverjum tónleikanna.
Justin átti hins vegar mikinn þátt í nýjustu plötu Madonnu, Hard Candy, og nú vill hún einnig fá hann til þess að syngja með sér á sviði.
Sagt er að það sé draumur Madonnu að bæði Justin og Britney, sem hættu saman árið 2002 eftir fjögurra ára samband, komi saman fram á lokatónleikum hennar í Badnaríkjunum í Miami í nóvember.
„Madonna er alltaf að reyna að ganga lengra og lengra og það væri fullkomið að hafa Britney og Timberlake saman á sviði,“ er haft eftir uppljóstrara um málið.
„Þau hafa bæði verið spurð, en ég held að þau séu bæði svolítið efins.“
„Það væri of miklar tilfinningar í spilinu fyrir Britney, og JT er kannski ekkert sérlega spenntur yfir þessu.“
„Það er líklegra að þau komi fram á sitthvorum tónleikunum.“
„En ef einhver gæti gert þetta að veruleika þá er það Madonna.“
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is