Er Matthew að halda framhjá?
Eins og allir sem fylgjast með slúðurfréttum vita eru þau Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick hjón til margra ára og saman eiga þau soninn James Wilkie Broderick, sem fæddist í október 2002. Hjónaband þeirra hefur löngum talist til fyrirmyndar í bransanum en nú mun vera brestur þar á því sagan segir að karlinn sé farin að halda framhjá.
Hjónadjöfullinn sem um ræðir er 25 ára rauðka sem starfar við félagsráðgjöf. Þau munu hafa hist á veitingahúsi og byrjað lauslegt samband umsvifalaust þar sem smáskilaboð flugu á milli þar til endað var í rúminu heima hjá félaga Matthews.
Slúðursérfræðingar vestra draga þessa frétt þó eitthvað í efa þar sem Matthew hefur helst verið grunaður um að hafa meiri áhuga á sínu eigin kyni en kyni eiginkonunnar. Atriði sem eiga að renna stoðum undir þetta eru mikill áhugi hans á söngleikjum. Spurning…
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is